Já svona eða þannig, þetta er ekki alveg búið að vera minn dagur í dag

Ég byrjaði daginn alveg drulluþreytt kl 7 og kom krökkunum á lappir og sagði þeim eldri að labba í frístund (já það var enn einu sinni frí í skólanum og ekki í síðasta sinn í þessari viku) Kom svo Kamillu útí í bíl og við brunum af stað, þegar ég er komin langleiðina þá tek ég eftir að ég gleymdi veskinu mínu heima

og sný við

og hvað haldið þið að hafið komið fyrir á leiðinni????? Ég lenti í árekstri í beygju hér rétt hjá húsinu okkar og bílinn er talsvert skemmdur en sem betur fer erum við mæðgur allt í lagi
Reyndar gekk vinnudagurinn bara vel og lærði ég fullt nýtt, ég er nefnilega að fara að gera allt annað í september þegar sú sem ég er að leysa af kemur úr barneignafríi

Ég er svona að byrja að fylgjast með því og læra og finnst mér það bara spennandi.
Ég var á fullu eftir vinnuna og settist fyrst niður klukkan hálf níu

Eldamennskan gekk svona lala en auðvitað náði ég að sletta mjólk um allt af því að þetta var nú ekki minn dagur

Maturinn bragðaðist nú samt bara vel og allir borðuðu vel og mikið.
Núna er Billa komin uppá fæðingardeild og verður sett af stað í nótt og ætli það komi ekki bara lítið aprílgabb á morgun


oh hvað verður gaman að knúsa litla krúttið

En eitt í lokin: Þegar ég sótti Kamillu á leikskólann þá fórum við að tala um áreksturinn og þá sagði litla músin mín: Mamma við setjum bara STÓRAN plástur á bílinn og þá verður allt í lagi


I WishKem með fréttir þegar litla mússí múss mætir